Mistök í prentun

segir ritstjórinn

Mogginn eins og hann leit út í morgun.

Hinir örfáu lesendur Morgunblaðsins ráku upp stór augu í morgun þegar blaðið kom öfugt inn um lúguna hjá þeim. Ómögulegt var því að lesa blaðið á venjulegan hátt heldur þurftu áskrifendur að snúa sér á hvolf við lesturinn með morgunkaffinu sem þar af leiðandi sullaðist út um allt.

“Við hörmum þessi mistök”, sagði Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins þegar Grefillinn náði sambandi við hann.

“Mér skilst að mistök hafi átt sér stað í prentun blaðsins og munum við grípa til okkar ráða til að fyrirbyggja að þetta gerist aftur.”

Er þetta mikið tjón fyrir blaðið?

“Já, fyrir Morgunblaðið sem slíkt er þetta talsvert tjón en ekkert fyrir áskrifendur því það var ekkert í blaðinu hvort sem er.”

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku