Hyggst byggja hótel og setja upp útiskákborð

Getum ekki mismunað mönnum eftir þjóðerni, segir Ögmundur.

Heimaklettur

Norður-Kóreumaðurinn Kim Jung Li hefur fest kaup á Heimakletti í gegnum Fasteignasöluna ehf. í Vestmannaeyjum. Hyggst hann byggja þriggja hæða lúxuhótel á toppi Heimakletts og setja þar upp veglegt útitafl við fyrsta tækifæri. Samkvæmt lögum eru kaup Kims á Heimakletti þó ekki fullgild fyrr en stjórnvöld hafa lagt blessun sína yfir þau. Að sögn heimildarmanns okkar í Ríkisstjórninni verður það auðsótt mál.

“Já, við höfum snert á málinu á ríkisstjórnarfundi og stefnum að því að afgreiða það endanlega eftir helgi”, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í viðtali við Grefilinn.

En nú segja sumir að það sé í raun ríkisstjórn Norður-Kóreu sem standi á bak við kaupin, að þessi Kim sé bara leppur?

“Hver segir það? Ég hef ekki heyrt neitt sem rennir stoðum undir slíkt.”

Það bloggaði einhver um það.

“Já, já menn blogga og gogga út í loftið, en það er varhugavert að taka mark á slíku gaspri. Auk þess er bannað að mismuna fólki eftir þjóðerni.”

En er það tilviljun að útitaflið líkist eldflaugaskotpalli og að taflmennirnir líta út eins og langdrægar eldflaugar?

“Smekkur manna á útitöflum er algjört aukaatriði í þessu máli og getur ekki litað ákvörðun ríkisstjórnarinnar.”

En ef það kemur nú í ljós að þetta ER eldflaugapallur og að á honum eru langdrægar eldflaugar sem er beint á New York og London?

“Ef og ef og ef? Þá tökum við bara á því þegar að því kemur”, segir Ögmundur. “Annars er mér það hulin ráðgáta hvers vegna menn halda að Norður-Kóreumenn myndu vilja miða eldflaugum á New York og London. Hvað gætu þeir grætt á því?”, sagði Ögmundur að lokum og sleit viðtalinu.

Þess má geta að Grefillinn falaðist eftir viðtali við norður-kóresku ríkisstjórnina um málið og er enn að bíða eftir svari.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku