Ræktar brúnaðar kartöflur
“Koma á markað fyrir jól”, segir Lundi Bergmann, kartöflubóndi.
Í þeirri kreppu sem herjað hefur á landann á undanförnum misserum hafa margar nytsamar sprotahugmyndir orðið til enda þurfa nú flestir að bjarga sér, hver sem betur getur.
Einn frumkvöðlanna er Lundi Bergmann, kartöflubóndi á Ystabæ í Lágsveit, en hann hefur undið sínu kvæði gjörsamlega í kross og hafið ræktun á brúnuðum kartöflum.
“Já, við áætlum að uppskeran fyrir jól verði um 300 tonn”, sagði Lundi í samtali við Grefilinn. “Ég var áður með kjötrækt en gafst upp á henni í kjötskortinum síðastliðið sumar.”
Hvernig er ræktun á brúnuðum kartöflum frábrugðin ræktun á venjulegum kartöflum?
“Það er fyrst og fremst sykurinn. Það fer mikill sykur í þetta. Síðar verðum við líka með sérstakt rjómaafbrigði fyrir sælkerana.”
Stefnir þú á útflutning?
“Já, ég geri það, en ekki fyrr en á næsta ári”, sagði Lundi, sem áætlar að fjórir fái vinnu við pökkun hjá honum í desember.
Að sögn Bola Blöndals, ráðunauts hjá búnaðarnefnd landssambands kartöfluframleiðenda fylgist nefndin grannt með framvinndu mála hjá Lunda.
“Þetta er athyglisverð tilraun og ef hún heppnast vel hjá Lunda er mjög líklegt að einhverjir sem fram að þessu hafa ræktað venjulegar kartöflur fari út í að rækta brúnaðar eða stígi skrefið til fulls og rækti kartöflumýs og franskar.”
Hvað með kartöflubáta?
“Nei, það er í höndum bátaframleiðenda, en við erum opnir fyrir samstarfi” sagði Boli.
Grefillinn óskar Lunda alls hins besta og vonar að fleiri fari að fordæmi hans og hefji nýsköpun í landinu sem fyrst.


Athugasemdir