Herrmann Lang, hinn nýi ritstjóri grefilsins.com

Herrmann Lang tekin við

Herrmann hefur bæði víðtæka og mikla reynslu af fréttatengdum vefmiðlum og hefur m.a. gegnt ritstjórastöðu á mbl.is, eyjunni.is og amx.is, auk þess sem hann kom á sínum tíma á legg sínum eigin miðli, dv.is.

Herrmann hefur einnig hlotið margháttaðar viðurkenningar fyrir störf sín á alþjóðavettvangi, var m.a. aðalfréttamaður CNN í miðausturlöndum nær á árunum 2002 til 2004, og hlaut þá t.a.m. hin virtu Pulitzer-verðlaun fyrir greinarflokk sinn um týnda þjóðflokkinn, Teknana.

Hann hefur einnig hlotið æðsta heiðursmerki bandaríska flotans fyrir vasklega framgöngu sína á Kyrrahafi þar sem hann bjargaði m.a. einn síns liðs um 100 flóttamönnum frá Grænhöfðaeyjum sem höfðu villst af leið.

Við hér á Greflinum bjóðum Herrmann Lang velkominn í hóp okkar Grefilsfólks hér á Greflinum.com og væntum mikils af samstarfinu um ókomin ár.

- Grefillinn sjálfur.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku