Kveikti sjálfur í hænsnahúsinu

Játaði við yfirheyrslur.

Hænurnar sem létust.

Lögreglan í Ystuvík hefur upplýst að eldurinn í hænsnahúsinu við bæinn Klöpp þar sem 23 hænur fórust kviknaði ekki út frá ófrágengnum rafmagnsköplum í hálmgeymslunni eins og fyrst var talið.

Við rannsókn málsins kom fljótlega í ljós að ófrágengnu rafmagnskaplarnir höfðu verið settir inn í hálmgeymsluna í blekkingarskyni, sennilega til að afvegaleiða rannsókn málsins.

Þegar þetta varð ljóst – og um leið að eldurinn hafði kviknað út frá eldspítu – var ákveðið að kalla til menn frá rannsóknarlögreglu ríkisins sem komust fljótlega á sporið.

“Fyrir utan ófrágengnu rafmagnskaplana þótti okkur afar dularfullt að nokkrar af þeim hænum sem létust í eldsvoðanum höfðu verið kryddaðar,” sagði Guðmann Grímsson rannsóknarlögreglumaður á blaðamannafundi sem boðað var til fyrr í dag vegna málsins. Sagði Guðmann að þetta hafi komið fram við krufningu og vera mjög óvenjulegt í málum sem þessum.

Í framhaldinu var ákveðið að óska eftir húsleitarheimild hjá Ögmundi Eyland, bónda á Klöpp, og þar fannst fljótlega dúnkur með kjúklingakryddi. Ögmundur var þvínæst handtekinn og játaði hann síðan við yfirheyrslur að hafa sjálfur kveikt í með eldspítunni.

Ekki hefur verið greint frá ástæðum verknaðarins.

Þess má geta að íbúar Ystuvíkur standa fyrir kertafleytingu við Grunnutjörn í kvöld til minningar um hinar látnu. Þeir sem komast ekki en vilja gjarnan minnast hinna látnu er bent á menningarsjóð Grefilsins.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku