Mun breyta öllu fyrir íslenskt samfélag
Allt mér að þakka
segir Össur Skarphéðinsson, olíumálaráðherra.
Olía hefur nú loksins fundist á Íslandi. Hún fannst á Langanesi eftir hádegi í gær, en þar hefur á undanförnum vikum staðið yfir víðtæk olíuleit á vegum bandaríska fyrirtækisins Search and Find sem á íslensku útleggst Leitið og þér munuð finna.
Segja má þó að fundurinn hafi verið fyrir nokkra tilviljun því starfsmenn Search and Find fundu olíuna ekki við hefðbundna leit heldur þegar þeir voru á leið í kaffi klukkan 15:00 í gær.
Að sögn olíumálaráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir Ísland, Íslendinga og ekki síst íslenskan efnahag, eins og hann orðaði það.
“Já, ég er mjög glaður”, sagði Össur á blaðamannafundi sem haldinn var vegna olíufundarins í morgun. “Ég var búinn að segja það allan tímann að við myndum finna olíu á Langanesi og það eina sem þyrfti væri að leita hennar vel. Nú er hún fundin og því má segja að þetta sé allt staðfestu minni og trú að þakka.”
Hvenær er reiknað með að vinnsla hefjist?
“Það getum við ómögulega vitað með vissu, en sennilega eftir hádegi í dag.”
Er þetta mikil olía?
“Mér skilst að það hafi verið um átta lítrar í brúsanum þegar hann fannst en það á eftir að mæla það betur.”
Fer olían á innanlandsmarkað eða er stefnt að útflutningi?
“Bretar hafa sýnt mikinn áhuga á að fá olíuna upp í skuldir óreiðumannanna og þótt ég telji það nokkuð góðan díl þá á alveg eftir að ræða þetta í ríkisstjórninni.”
Þess má geta að lánshæfismat Íslands rauk upp í AAAAAA+ hjá Moody’s um leið og fréttist af olíufundinum.



Athugasemdir