„Nokkuð erilsamt starf“

segir Bugur Björnsson, ávísir.

Bugur Björnsson: Nóg að gera.

Eins og flest fólk hefur tekið eftir er hinum margvíslegustu málum, jafnvel ávirðingum og ákærum oft vísað á Bug. Okkur hér á Greflinum fannst áhugavert að skoða málið nánar og hringdum því í Bug Björnsson, ávísi.

Er nóg að gera?

„Já, upp á síðkastið hefur verið ansi mikið að gera“, sagði Bugur. „Allt frá hruni hefur mjög mörgum málum verið vísað á mig, og bara núna um helgina hefur bæði ákærum og ávirðingum í stóra-Kópavogsmálinu verið vísað á mig. Þannig að … já, þetta er nokkuð erilsamt starf.

Hvað gerirðu vil öll þessi mál?

Nú, ég ég geri nú mest lítið við þau, set þau bara upp í hillu.

Hvernig stóð á því að þú fórst í þetta starf?

Þetta er nú eiginlega fjölskyldubissness sem byrjaði í föðurhúsunum. Þangað var mörgum málum vísað þegar ég var ungur og svo fór bara að við pabbi ákváðum að skipta rekstrinum í tvennt þegar ég flutti að heiman.

Verðurðu eitthvað að vinna um jólin?

Nei, ég reikna ekki með því. Yfirleitt róast þetta um hátíðirnar en svo fer allt af stað á ný fljótlega eftir áramót“, sagði Bugur að lokum.

Við hér á Greflinum munum hér eftir vísa öllum óþægilegum málum á Bug og hvetjum landsmenn til að gera slíkt hið sama.

  One Response to “Öllu vísað á Bug”

  1. Ég er stoltur af þér sonur sæll. En manstu nokkuð hvað þú gerðir við ákærurnar á Jón Ásgeir? Þeim hefur víst verið vísað aftur til föðurhúsanna.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku