“Maður verður að prófa allt einu sinni”
Fær sér afréttara í fyrramálið.
Hinn landsþekkti grínisti, mannvinur og umhverfissinni, Ómar Ragnarsson, hefur nú loksins prófað allt. Til hans sást norðan við Grímsvötn í gærkvöldi þar sem hann var á skallanum.
Við rétt náðum sambandi við Ómar áður en hann flaug norðaustur á Vopnafjörð og spurðum hann hverju þetta sætti.
“Þetta er náttúrulega bara sama gamla ævintýraþráin”, sagði hann. “Vill maður ekki prófa allt að minnsta kosti einu sinni?”
Heldurðu að þetta verði langur túr?
“Nei, ég reikna með að fá mér afréttara í fyrramálið. Annars má ég ekki vera að þessu , það er allt á hvolfi hérna.”
Ertu viss um að þú sért ekki orðinn öfugur, Ómar?
“Nei, nei, þú getur nú bara fengið það staðfest hjá frúnni, ha, ha, ha.”
Við hér á Greflinum munum halda áfram að fylgjast með ferðum Ómars og tökum ennfremur við öllum ábendingum um háttalag hans.


Athugasemdir