Misstirðu af fréttunum?
Gastu ekki lesið bloggsíðurnar?
Færðu ekki nóg af upplýsingum?

Þá er Öppdeitarinn eitthvað fyrir þig.

Öppdeitar það fyrir þig!


Þessir áströlsku Öppdeitarar hafa farið sigurför um
allan heim og eru nú loksins fáanlegir á Íslandi.

Með Öppdeitaranum færðu allar þær fréttir og
upplýsingar sem hægt er að fá beint í eyra!

Auk þess hleður hann í þig:

Daglegum ræðum Alþingismanna.
Daglegum gjaldmiðlabreytingum.
Daglegu bensínhækkunum.
Daglegum launahækkunum.
Öllum slúðurfréttum
Öllum Fésbókarfærslum

Og mörgu fleiru.

Hvað segja ánægðir kaupendur?

“Vildi að ég hefði átt Öppdeitara sumarið fyrir hrun”
- Geir H. Haarde, blómaskreytingamaður.

“Ég nota Öppdeitarann á hverjum degi.”
- Bogi Blöndal, bloggari.

“Án Öppdeitarans væri ég ekki svona vel með á nótunum.”
- Jónas Kristjánsson, rótari.

Eftir hverju ertu eiginlega að bíða?

Fáðu þér Öppdeitarann STRAX í dag!

Og nú á TILBOÐI í örfáa daga!

Aðeins kr. 138.502,- með pístum.

Tveggja ára ábyrgð.


 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku