Mögnuð nýjung í orkumálum:
Orkusteinn Grefilsins
með mjúkum kóalajónum og septókrötum.

Orkusteinn Grefilsins er einstök nýjung á orkusteinamarkaðinum,
enda virkar hann sex til sjö sinnum betur en aðrir orkusteinar þótt
hann kosti bara brot af því sem aðrir orkusteinar kosta!
Það sem gerir Orkustein Grefilsins einstakan er að hann inniheldur
og gefur frá sér dúnmjúkar, sampólaðar kóalajónir sem vinna náið með
orkubrautum líkamans sjálfs, þ.m.t. bakrásarbrautinni, og skapa þannig
djúpa, nærandi, náttúrulega og orkumikla vellíðan hjá notandanum.
Annað sem Orkusteinar Grefilsins hafa umfram alla aðra
orkusteina eru einstaklega húðnæmar rafsegulnálar (septókratar)
sem margfalda getu líffæranna til náttúrulegrar orkuframleiðslu.
Rannsóknir hafa sýnt að þegar líkaminn er nærður daglega með
septókrötum magnast m.a. kynorkan til muna, sérstaklega hjá eldri
karlmönnum með ristilvandamál. Septókratar lækna líka bakverki.
Þannig má segja að Orkusteinn Grefilsins gefi mönnum nýtt líf.
Fáðu þér Orkusteininn strax í dag og upplifðu muninn!
Gjafverð, aðeins kr. 699,- stykkið.
Hvað segja ánægðir kaupendur:
“Ég fékk mér svona Orkustein og nú er ég sneisafull af orku.”
- Gunnvör Sigurlásadóttir, saumakona.
“Ég var alltaf með risvandamál og bakverki en eftir að ég fékk mér
Orkustein frá Greflinum þá eru öll slík vandamál úr sögunni.”
- Bekkur Björnsson, heildsali.
“Ég get ekki lýst því hve þakklát ég er Greflinum fyrir að koma með
Orkusteininn á markaðinn. Ég hef prófað velflesta orkusteina, en
Orkusteinnin frá Greflinum er sá eini sem hefur raunverulega virkað.”
- Klígja N. Matthíasdóttir, nemi og þjónustufulltrúi.
Það þurfa allir að eignast Orkustein Grefilsins!
Takmarkað magn – Aðeins örfáir Orkusteinar eftir.
===============

Athugasemdir