Nokkrar hænur.

Hænur eru merkileg dýr sem hafa heldur betur sett mark sitt á söguna.

Hænur eru líka dálítið fyndin dýr, eða það finnst mér alla vega.

Hins vegar hef ég aldrei skilið tilganginn í því að vera fugl sem getur ekki flogið.

Það hlýtur að vera bömmer.

Einhvern tíma heyrði ég reyndar að ástæðan fyrir því að hænur geta ekki flogið sé sú að þær þróuðust úr eðlum, fengu fiður og vængi og allt, en áður en þær hófu sig til flugs datt einhverjum í hug að smíða hænsnahús.

Þar með stöðvaðist þróun hænunnar.

Síðan hafa hænur verið eins og þær eru.

Sumir segja að Guð hafi skapað hænurnar.

Sé það rétt þá hefur Guð ágætan húmor.

Hér er þekktur og vinsæll hænubrandari:

Læt ég þetta nægja um hænur.

þakka þeim sem litu inn.

- Grefillinn sjálfur.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku