Grefilsgerðingar upplifa nú umhverfi sitt brúnt, enda er það brúnt. Ástæðan er auðvitað þetta eldgos í Grímsvötnum, eða réttara sagt, askan sem úr því kemur. Hún er sem sagt brún.
Hér hefur þetta brúna öskuský hvolfst yfir á undanförnum klukkustundum og sér nú ekki lengur húsa á milli eins og eftirfarandi mynd ber með sér.
Myndin er tekin í austur um hálfáttaleytið og ef hún prentast vel má rétt
sjá glitta í þau Eirík Ólafsson setjara og eiginkonu hans, Sigurlaugu, þar
sem þau voru að setjast upp í fjölskyldubílinn. “Farinn til Akureyrar”, sagði
Eiríkur um leið og hann brunaði á brott ásamt Sigurlaugu og börnunum.
—

Athugasemdir