Bjarni Benediktsson: Göngum óbundnir til samninga um inngöngu í Besta flokkinn.

Sá kvittur hefur verið á kreiki undanfarið að Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér að spila út óvæntu trompi núna á vormánuðum og sækja um inngöngu í Besta flokkinn.

Við ákváðum að hringja í Bjarna Ben, formann Sjálfstæðisflokksins og inna hana eftir sannleiksgildi þessara tíðinda:

“Já, það er rétt. Við Sjálfstæðismenn höfum ákveðið samhljóða að sækja um inngöngu í Besta flokkinn undir kjörorðinu ‘Öll sem eitt og aðeins það besta’,” sagði Bjarni. “Ég meina … If you can’t beat them, join them … segja þeir … og það er nákvæmlega það sem við ákváðum að gera.”

En hvernig komu þessi sinnaskipti til?

“Þetta bar að þannig að ég festi kaup á svokölluðum Fattara hjá Greflinum og eftir að hafa prófað hann fattaði ég einfaldlega að það væri langbest að vera í Besta flokknum. Síðan fjárfesti flokkurinn í Fötturum fyrir alla í miðstjórn og það var sama sagan … það rann bara upp ljós fyrir öllum nema Halldóri Blöndal að besta leiðin til að bjarga bæði landsmálunum og Sjálfstæðisflokknum væri að ganga í Besta flokkinn. Með Fattaranum varð þetta bara svo augljóslega besti kosturinn að ekkert okkar þurfti einu sinni að prófa Fatttarann tvisvar.”

Þannig að þú mælir þá heilshugar með Fattaranum frá Grefli?

“Ja, það geri ég svo sannarlega,” sagði Bjarni að lokum, glaðbeittur í bragði, enda á leiðinni til Jóns Gnarr að semja um inngöngu Sjálfstæðisflokksins í Besta flokkinn.

En hvað segja pólitískir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins um málið?

Dagur: Fyrst og fremst fólkið í landinu sem skiptir máli.

“Ja … ég óska þeim auðvitað velfarnaðar,” sagði Dagur B. Eggertsson” en minni á að það er í framtíðinni sem tækifærin bíða okkar og þess vegna verðum við að einbeita okkur að því hvað við eigum að gera í dag til að koma sem best á móts við óskir landsmanna varðandi þetta og önnur brýn erindi sem bíða lausnar og nauðsynlegt er að taka ákvarðanir um sem fyrst að vel ígrunduðu máli. Það er það sem við í Samfylkingunni viljum og munum gera … hlusta á fólkið í landinu.”

Og Steingrímur J. Sigfússon hafði þetta að segja:

“Þetta eru óvænt tíðindi en fyrirsjáanleg. Sjálfstæðisflokkurinn er fyrir löngu búinn að týna sjálfum sér og ég er eiginlega mest hissa á því að hann skuli ekki hafa keypt sér Fattara fyrir löngu”.

Við náðum síðan í Jón Gnarr formann Besta flokksins og inntum hann eftir viðbrögðum við þessu útspili Sjálfstæðisflokksins:

Jón Gnarr: Fattar þetta.

“Ja, ég ætla nú ekkert að fara í viðræður við Sjálfstæðisflokkinn í gegnum einhverjar grefils netsíður úti i bæ”, sagði Jón. “Ég á von á Bjarna eftir smástund og ef hann býður vel þá förum við yfir málið.”

Aðspurður hvort hann ætli ekki að fá sér Fattara sagðist Jón fyrst ætla að láta reyna á hvort hann fái ekki lánaðan Fattara hjá Bjarna. “Við hjá borginni bruðlum ei.”

Því miður náðist ekki í fulltrúa Framsóknar við vinnslu þessarar fréttar þar sem búið var að loka hjá þeim símanum.

Þess má að lokum geta að Fattararnir vinsælu eru enn fáanlegir á vefritinu Grefillinn og eru reyndar á tilboði nú í nokkra daga.

—————–

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku