Apr 072012
 

Vantrú með hóprúnk á Austurvelli

Er hægt að kalla þetta eitthvað annað?“, spyr Matthías Ásgeirsson yfirrúnkari

Hið árlega hóprúnk Vantrúar fer fram á Austurvellli á morgun fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni. Tilgangurinn er að mótmæla helgidagalöggjöf Íslendinga.

„Já, við erum að mótmæla trúarorgíum og trúarrúnki kristinna manna. Okkur í Vantrú er bannað að trufla þetta trúarrúnk með okkar rúnki en svo mega trúarrúnkarar trufla okkur með kirkjuklukkum til að auglýsa sitt rúnk“, segir Matthías Ásgeirsson, eigandi Vantrúar. „Þessu viljum við mótmæla.“

En er það baráttu Vantrúar til framdráttar að kalla trúariðkun rúnk og rúnka sér á móti?

„Er það eitthvað óskaplega óviðeigandi? Er rúnk ekki bara það að gera vel við sjálfan sig?“

Ja, væri ekki hægt að nota eitthvað annað en ‘rúnk’ til að koma mótmælunum á framfæri?

„Af hverju? Hvenær varð ‘rúnk’ uppnefni? Hvað er svona slæmt við orðið ‘rúnk’? Er hægt að kalla þetta eitthvað annað? Annars skiptir engu hvað við gerum, það móðgast allir hvort sem er. Við í Vantrú erum hins vegar stolt af okkar aðferðum og orðanotkun og erum orðin þreytt á trúfólki sem rúnkar sér í kirkjum landsins og móðgast svo þegar við rúnkum okkur.

Þess má geta að hóprúnk Vantrúar hefst stundvíslega klukkan 11 og verða páskaegg í verðlaun fyrir besta rúnkið. Nánari upplýsingar verður að finna á bloggi Matthíasar.

 

Földu sig á salerninu hjá Jóni

Þráuðust við, segir heilbrigðisfulltrúinn sem fann þá

Vondir kókópöffspakkar. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint.

Vondu  kókópöffspakkarnir sem komust ólöglega inn í landið á mánudag og leitað hefur verið að eru fundnir. Starfsmaður heilbrigðiseftirlitsins kom að þeim á bak við salernishurðina á heimili Jóns Geralds Sullenberger á tíunda tímanum í morgun, en Jón Gerald er talinn hafa aðstoðað þá á flóttanum.

Gáfust þeir strax upp?

„Nei, þeir þráuðust við, þóttust vera seríóspakkar“, sagði Simmi Sívertsen, heilbrigðisfulltrúi í samtali við Grefilinn í morgun.

Er málinu þar með lokið?

„Þessu máli er lokið já, en baráttan er samt rétt að byrja.“

Þess ber að geta að eftirlit hefur nú verið hert verulega í gámahöfnum landsins svo fleiri vondir kókópöffspakkar komist ekki inn í landið á ólöglegan hátt.

 

Lögðu Liverpool 0-8 á Anfield.

Titillinn svo að segja í höfn, fjórða árið í röð

Englandsmeistarar Leeds verða vart stöðvaðir úr þessu eftir að þegar þeir rótburstuðu botnlið Liverpool á Anfield með átta mörkum gegn engu í gærkvöldi. Leeds er nú komið með 17 stiga forskot í úrvalsdeildinni þegar 7 umferðir eru eftir og er auk þess með 88 mörk í plús, 59 mörkum meira en Teleford sem er í öðru sæti deildarinnar.

Leikurinn í gær var einstefna frá upphafi til enda og hefðu leikmenn Leeds hæglega getað skorað 8 mörk í viðbót, bara í fyrri hálfleik, svo lélegir voru Liverpool-menn, en Liverpool er sem kunnugt er löngu fallið ásamt Chelsea og Manchester United sem bæði töpuðu einnig sínum leikjum í gær og eru með 4 stig hvort félag, 3 stigum fyrir ofan Liverpool.

Þar með er fjórði Englandsmeistaratitill Leeds í röð nokkurn veginn kominn í hús, en liðið hefur sennilega aldrei verið betra, hefur ekki tapað deildarleik í þrjú ár auk þess að vera bæði bikarmeistari og Evrópumeistari.

 

Ertu orðin(n) leið(ur) á peningaskortinum?

Sérðu ekki fram á að endar nái saman?

Sé svo þá er

PENINGAPLOKKARINN

eitthvað fyrir þig!

Hvað segja ánægðir kaupendur?

“Ég var orðin hálfblankur þegar ég ákvað að fá mér peningaplokkarann.
Síðan þá hefur mig ekki skort peninga.”
- Sigurður Einarsson.

“Ég mæli heilshugar með peningaplokkaranum fyrir alla sem
vantar peninga vafningslaust.”
- Bjarni Benediktsson.

“Ég skil ekki hvað fólk er að kvarta yfir peningaskorti þegar það getur
bara fengið sér peningaplokkarann.”
Jóhanna Sigurðardóttir.

“Peningaplokkarinn gerði mér kleift að eignast allt sem mig langaði í.”
- Ólafur Ólafsson.

“Ég var orðinn úrkula vonar um að geta borgað Icesave-skuldirnar
þegar Jóhanna benti mér á peningaplokkarann. Nú er ég búinn að
borga Icesave upp í topp og gat auk þess keypt mér hornsófa.”

- Steingrímur J. Sigfússon.

Verð aðeins kr. 4.999,-

TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ

Pantaðu fimm eða fleiri Peningaplokkara fyrir
kl. 20:00 í kvöld og fáðu límrúllu með FRÍTT.


 

Að minnsta kosti þrír látnir

Margir stórslasaðir

Frá árásinni: Jón Karfi fyrir miðri mynd.

Æðiskast virðist hafa runnið á skipverja á bátnum Brynjólfi í nótt þegar þeir hófu fyrirvaralausa árás á karfatorfu sem var saman komin til að fagna þrettán þúsund ára afmæli karfastofnsins við Ísland.

„Þetta var skelfilegt“, segir Jón Karfi Jónsson sem tókst að sleppa lifandi frá hildarleiknum.

Geturðu lýst atburðarásinni?

„Við vorum þarna að synda öll saman þegar þrengdist skyndilega að okkur og áður en ég vissi af gat ég ekki hreyft mig. Ég missti meðvitund en þegar ég rankaði við mér lá ég á einhverju ísköldu járni ásamt öllum hópnum og náði ekki andanum. Þá sé ég hvar Lóló systir mín er skorin á háls af manni sem ég hef aldrei séð áður. Ég reyndi að sprikla mig til hennar en rann þá af járninu og var allt í einu kominn aftur í sjóinn.“

Hvað heldurðu að manninum hafi gengið til?

„Ég veit það ekki og veit ekki til þess að Lóló hafi nokkurn tíma gert honum neitt. En ég mun aldrei gleyma honum og glampanum í augum hans.“

Lögreglan verst enn sem komið er allra frétta af málinu en staðfestir að margir karfar séu stórslasaðir og að minnsta kosti þrír látnir.

Ekki er hægt að greina frá nöfnum hinna látnu að svo stöddu.

 

© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku