Ertu orðin(n) leið(ur) á peningaskortinum?
Sérðu ekki fram á að endar nái saman?
Sé svo þá er
PENINGAPLOKKARINN
eitthvað fyrir þig!

Hvað segja ánægðir kaupendur?
“Ég var orðin hálfblankur þegar ég ákvað að fá mér peningaplokkarann.
Síðan þá hefur mig ekki skort peninga.” - Sigurður Einarsson.
“Ég mæli heilshugar með peningaplokkaranum fyrir alla sem
vantar peninga vafningslaust.” - Bjarni Benediktsson.
“Ég skil ekki hvað fólk er að kvarta yfir peningaskorti þegar það getur
bara fengið sér peningaplokkarann.” - Jóhanna Sigurðardóttir.
“Peningaplokkarinn gerði mér kleift að eignast allt sem mig langaði í.”
- Ólafur Ólafsson.
“Ég var orðinn úrkula vonar um að geta borgað Icesave-skuldirnar
þegar Jóhanna benti mér á peningaplokkarann. Nú er ég búinn að
borga Icesave upp í topp og gat auk þess keypt mér hornsófa.”
- Steingrímur J. Sigfússon.
Verð aðeins kr. 4.999,-
TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ
Pantaðu fimm eða fleiri Peningaplokkara fyrir
kl. 20:00 í kvöld og fáðu límrúllu með FRÍTT.

Athugasemdir