Er í fríi fyrir austan

“Allt saman tómur lesmisskilningur”, segir Reynir.

Reynir Harðarson, formaður Vantrúar fyrir austan í gær: "Veit ekkert um málið."

Eins og kunnugt er fannst mörgum einkennilegt að Reynir Harðarson formaður Vantrúar virtist hreinlega gufa upp á sama tíma og upp risu í samfélaginu allnokkrar umræður og deilur um árásir Vantrúarhópsins á einn af stundakennurunum Háskóla Íslands.

Nú hefur komið í ljós að fyrir þessu hvarfi Reynis eru ofureinfaldar og eðlilegar ástæður. Að sögn hans sjálfs hafði hann einfaldlega ekki hugmynd um umræðuna og því síður að málið hefði vakið jafnmikla athygli og raun ber vitni.

“Ja, þú segir mér fréttir”, sagði Reynir í samtali við við fréttaritara Grefilsins fyrir austan sem hitti hann óvænt á förnum vegi. “Nei, ég veit ekkert um þetta Vantrúarmál. Ég er í fríi hér og hvorki fæ né les blöð og því síður fer ég á Netið. Og ég er ekki með síma.”

En ætlar þú ekki að láta heyra frá þér fljótlega?

“Nei, ég má ekkert vera að þessu. Auk þess veit ég ekkert um þetta mál eins og ég sagði og það kemur mér ekkert við.”

En nú kemur skýrt fram í gögnum málsins að þú hefðir sem formaður Vantrúar átt allnokkra aðild að atburðarásinni …?

“Já … nei, nei, ég er ekkert inni í þessu. Þetta er allt saman tómur lesmisskilningur. Þú verður að tala við Valgarð Guðjónsson um það. Hann útskýrir fyrir þér hvað ég meina.”

En …

“Heyrðu, ég hef ekki tíma núna. Gaman samt að spjalla við þig”, sagði Reynir og hjólaði við svo búið fram í dal.

Grefillinn reyndi að ná tali af Valgarði Guðjónssyni en hann var upptekinn við trúboðastarf trúlausra á öldurhúsum Reykjarvíkur.

  One Response to “Formaður Vantrúar fundinn”

  1. Ja hérna flóttamaðurinn fundinn…hann er helvíti flottur á hjólinu…hahaha…

    Þess má til gamans geta að ég var einmitt á öldurhúsi í Reykjavík þegar Valli ruddist inn og byrjaði að boða trúleysið. Hann var ekki búinn að vera lengi þarna þegar ég áttaði mig á að ég var hættur að trúa mínum eigin augum og eyrum … já mikill er máttur Valla.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku