Dreymir þig um frama í blaðaheimum?

Viltu verða ritstjóri á vefriti, bloggsíðu, dagblaði, tímariti eða öðru riti?

Þá þarftu að fá þér …

Bogið en brotnar ekki.

Ritstýrið er nýjung sem slegið hefur í gegn út um allan heim á
undanförnum árum. Með Ritstýrinu stýrir þú hvaða bloggsíðu,
vefriti og dagblaði sem er í heila höfn og tryggir um leið
bæði vinsældir og vegsauka.

Glæsilegur staðalbúnaður:

Hægt að beygja bæði til hægri og vinstri.
Hægt að velja og festa í hvaða stefnu sem er.
*Hægt að haga seglum eftir pólitískum vindi.
Sítengd sjálfsstýring.
Rafmagns-leiðararskrifari.
Hagsmunatengdur hitamælir.
Starfsmannaflauta.
Hægt að tengja í Sjálfvirka auglýsingaseljarann.

*Athugið að byr í seglin fylgir ekki með.

Hvað segja ánægðir notendur?

“Þetta er allt, allt, allt annað líf. Núna mætir maður í vinnuna,
kveikir á Ritstýrinu og fer svo bara að gera eitthvað annað.”
- Ólafur Stephensen, ritstjóri.

“Ég hefði nú aldrei keypt mér svona græju nema vegna þess
að hægt var að festa það í Sjálfstæðisstefnu. Núna veit ég
ekki hvað ég gerði án þess.” - Davíð Oddsson, ritstjóri.

“Við stilltum okkar Ritstýri á stefnuleysi og höfum
keyrt á því síðan. Virkar fínt.”

- Ritstjórn Eyjunnar.

Ath: T-100 Ritskoðari fylgir FRÍTT
með 50 fyrstu Ritstýrunum.

Verð aðeins 179.900,- fyrir venjulega ritstjóra.
Verð aðeins kr. 189.900,- fyrir ritstjóra á Suðurnesjum.

Takmarkað magn – næsta sending verður mun dýrari.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku