===== ===== ===== ===== =====

Þarft þú að skipta um skoðun?

Veistu um einhvern sem þarf á nýjum skoðunum að halda?

Þá erum VIÐ með lausnina!

SKOÐANASKIPTIRINN

Var að taka upp sendingu af glænýjum skoðanaskiptum
með innbyggðum analíser, leverkum og línuteikni.

Vinnur fljótt og vel á öllum skoðunartengdum vandamálum, s.s.:

Þingmannadraumum
Umhverfisofstopa
Fjórflokkafylgni
Greiðsluskyldu
Sjálfsbirging
Bloggsýki
Trúrækni
Bannæði
Gosfælni
Kreppu
Vantrú

… og fleiri rugl- og ranghugmyndum.

Pantið NÚNA og fáið Arðsugu
með á tæplega 10% afslætti*!

Tilboðsverð í nokkra daga, aðeins 13.990,-

Sendi hvert á land sem er nema til Siglufjarðar.

=============================
*3% afsláttur.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku