Þykir ekki nógu suðrænn í útliti

Ætlar að leita réttar síns

Skúli Eggert: Þykir ekki nógu suðrænn í útliti.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri var í dag rekinn úr starfi vegna þess að hann þykir ekki nógu suðrænn í útliti.

“Já. Ég get staðfest að í morgun fékk ég bréf þess efnis að mér væri sagt upp sem skattstjóra vegna þess að ég þyki ekki nógu suðrænn í útliti”, sagði Skúli í símaviðtali við Grefilinn í dag.

Er það brottrekstrarsök að þykja ekki nógu suðrænn í útliti?

“Ég veit það ekki. Ég hef að minnsta kosti aldrei heyrt það áður að maður þyrfti að þykja nógu suðrænn í útliti til að geta verið skattstjóri. Persónulega finnst mér þetta fáránleg ástæða og efast um að það fái staðist að hægt sé að reka mann úr starfi fyrir þetta.”

En hvað ætlarðu að gera?

“Ég ætla að leita réttar míns í málinu, svo mikið er víst. Ég mun leita leiða til að fá þessari uppsögn hnekkt. Að öðru leyti vil ég ekkert um mína framtíð segja að svo stöddu.”

Ekki liggur fyrir hver verður ráðinn í starfið í stað Skúla en væntanlega verður það einhver sem þykir nógu suðrænn í útliti.

 

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku