Gosinu lokið í kvöld?

Örugglega

segir slökkviliðsstjórinn á Kirkjubæjarklaustri

Geir Brekkan

Slökkviliðið á Kirkjubæjarklaustri er nú á leiðinni við þriðja mann upp að Grímsvötnum til að slökkva í gosinu sem hófst þar á laugardagskvöld. Er reiknað með að þeir verði komnir á staðinn seinnipartinn í dag og að slökkt hafi verið gosinu og síðustu glæðunum um kvöldmatarleytið.

“Já, ég held þetta verði ekkert mál,” sagði Geir Brekkan, slökkviliðsstjóri í samtali við Grefilsfréttir núna í morgunsárið, rétt fyrir brottför upp á Vatnajökul.

En er þetta ekki hættuför?

“Auðvitað fylgir því alltaf viss hætta að slökkva í eldgosum, en ég er með vanan mann með mér þannig að ég hef engar áhyggjur af því. Ég vona bara að það verði það hlýtt að okkur verði ekki kalt á fingrunum. á meðan við slökkvum í þessu.”

En hefur svona verið gert áður?

“Nei, ekki svo ég viti. Ætli menn hafi ekki haft bara of litla trú á því hingað til að þetta væri hægt. En þetta er vel hægt og í raun ekkert mál ef rétt er að farið.”

Fylgir þessu einhver kostnaður?

“Neeee, ekki svo mikill alla vega. Það er að minnsta kosti ódýrara að slökkva í þessu en að þurfa að leggja niður allar flugsamgöngur í Evrópu á meðan við bíðum eftir að spýjunni sloti af sjálfu sér.”

Jón Ólafsson: Leggur til vatn og flutningskostnað

En allt vatnið sem fer í þetta? Eitthvað hlýtur það nú að kosta?

“Já, en Jón Ólafsson, vatnabóndi með meiru ákvað að leggja allt vatnið til og flutninginn á því líka á sinn kostnað þannig að skattgreiðendur verða ekkert varir við hann. Auk þess er þetta vatn sem Jón var fyrir löngu hættur að nota”.

Þess má geta að allir landsmenn eru velkomnir upp á Vatnajökul til að fylgjast með slökkvistarfinu og er fólk hvatt til að hafa með sér stóla.


   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku