Annasöm nótt hjá Geir Brekkan
Hafðist að lokum
Hefði samt getað gengið betur
Geir Brekkan, slökkviliðsstjóri á Kirkjubæjarklaustri lauk nú fyrir stundu við að slökkva í Grímsvatnagosinu sem hefur verið að hrella landsmenn undanfarna sólarhringa. Við náðum tali af Geir þar sem hann var að rúlla upp slöngunum og búa sig til brottfarar.
“Jamm, búið”, sagði Geir. “Það er bara reykur og gufa eftir og þótt maður geti að sjálfsögðu aldrei verið viss um að svona gos hefjist ekki á ný, þá ert þetta alla vega búið í bili.”
Var þetta erfitt?
“Nei, nei, ekki svo … og hefði verið auðveldara ef maður hefði fengið frið fyrir björgunarsveitarmönnum og svokölluðum vísindamönnum, en krökkt er af þeim á svæðinu núna. Guð veit hvað þeir eru að gera.”
Vilja þeir bara ekki ná í sýni?
“Sýni?”
Já, sýni úr gosinu?
“Ja, þá hefði nú verið alveg jafngott fyrir þá að horfa bara á sjónvarpið.”
En Geir, hvað fóru margir lítrar af vatni í þetta?
“Það fóru einhverjir lítrar … en heyrðu, ég nenni ekki að tala við þig meir. Þarf að henda nokkrum eldvarnarteppum á gíginn og er svo farinn heim.”
Þess má geta að Geir er væntanlegur til byggða um fimmleytið í dag.


Athugasemdir