„Reiknum með rífandi jólastemningu“

segja þeir Steinar og Stulli.

Steinar og Stulli

Hinir landsþekktu skemmtikraftar og söngvarar Steinar og Stulli halda sína árlegu jólatónleika í Hörpunni á laugardag og er aðgangur ókeypis fyrir alla 4 ára og yngri eins og hefð er fyrir á tónleikum þeirra félaga.

Að venju verða jólalög á dagskránni en einnig mun Stulli sýna nokkra spilagaldra eins og honum einum er lagið auk þess sem þeir Steinar munu í sameiningu bjóða upp á eftirhermur og bingó ásamt kanadíska söngvaranum Justin Bieber sem kom til landsins í morgun af þessu tilefni, en hann og Steinar og Stulli þekkjast vel síðan þeir tóku saman lagið á tónleikum Justins í Radio City Hall í New York í september á þessu ári.

Miðasala er hafin í skóverslun Haraldar, Frakkastíg 4, en ósóttar pantanir verða seldar eftir klukkan 4 í dag. 

  5 Responses to “Steinar og Stulli með jólatónleika”

  1. Mér finnst það satt að segja fyrir neðan allar hillur að þeir Steinar og Stulli skuli ekki bjóða manni á þessa tónleika eins og ég er nú búinn að bjóða þá oft á mína tónleika. Þess vegna lýsi ég bara frati á þá fyrir utan að Stulli er ekkert góður söngvari.

  2. Bubbi, við buðum þér á Hellutónleikana í vor sem leið en þú mættir ekki að lést ekkert í þér heyra svo við héldum að þú hefðir engan áhuga á að mæta kallinn. Ekki kasta gleri úr steinhúsi.

  3. Elskum friðinn elsku strákarnir mínir. Ég mundi ekki koma á svona jólatónleika þótt mér væri borgað fyrir það hvort sem er.

  4. Ekki veit ég hvað Bubbi Morthens er að þenja sig hér því ekki var mér boðið á þessa tónleika frekar en neinum okkar sem stöndum fyrir kirkjustarfi í þessu landi.

  5. Þegi þú bara Karl. Ég veit ekki til þess að þú hafir nokkru sinni keypt með mér plötu.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku