Skemmtikraftarnir vinsælu Steinar og Stulli eru nú að fara í sinn árlega hring um landið þar sem þeir munu skemmta landsbyggðarfólki við hin ýmsu tækifæri.
Verkefnastaðan er góð, en þó verður að viðurkenna að hún hefur oft verið betri um þetta leyti árs. Því geta þeir félagar bætt við sig verkefnum, aðallega á virkum dögum.
Af þessum sökum báðu þeir Steinar og Stulli okkur hér á Greflinum um að koma því á framfæri við lesendur vefritsins að þeir væru alveg til í að bóka góð og vel borguð verkefni í sumar.
Hægt er að ná í umboðsmann þeirra Steinars og Stulla í síma 824 2001 eftir klukkan 17:10 alla virka daga.
Þessu er hér með komið á framfæri.
—


Athugasemdir