Steingrímur J. Sigfússon söðlar um

Búinn að fá nóg af Vinstri-Grænum

Alveg glatað lið þarna, segir hann

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra hefur sagt af sér formennsku í Vinstri-Grænum og jafnfram gengið formlega úr flokknum. Hann hyggst ganga í Sjálfstæðisflokkinn eftir helgi.

“Já, ég hef ákveðið að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og bjóða mig þar fram til formanns”, sagði Steingrímur í stuttu spjalli við Grefilinn.

Hvað veldur þessum sinnaskiptum?

Æji … ég er bara búinn að fá nóg af þessu VG-liði, sínöldrandi og grafandi undan manni alltaf hreint. Ég nennti þessu ekki bara lengur … segi það bara alveg eins og það er.”

Heldurðu að þú fáir stuðning í formannsstól Sjálfstæðisflokksins í haust?

“Já, ég held það. Af hverju ekki? Ég er mjög vanur stjórnmálum og þá vantar einmitt þannig mann í brúnna. Þetta eru eintómir plebbar og pabbastrákar þarna núna. Auk þess er ég fjármálaráðherra þannig að um leið og ég er orðinn formaður þá er Sjálfstæðisflokkurinn kominn í stjórn.”

Ertu viss um að það virki þannig?

“Já, auðvitað virkar það þannig.”

Ekki náðist í neinn til að leita álits á þessum tíðindum enda allir komnir í helgarfrí.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku