Þjóðkirkjan ER ríkiskirkja!
Reiknum með Nóbelsverðlaununum, segir formaðurinn
Þær fréttir hafa nú farið sem eldur um sinu um allan heim að meðlimir Vantrúarklúbbsins hafi uppgötvað upp á eigin spýtur að þjóðkirkjan sé í raun ríkiskirkja.
“Við höfum lengi haldið þessu fram”, segir formaður klúbbsins í viðtali við Grefilinn, “en enginn viljað trúað okkur fyrr. Nú hafa vísindalegar rannsóknir okkar leitt í ljós að prestur einn sagði þetta næstum því alveg sjálfur og staðfesti þar með að við höfðum rétt fyrir okkur í þessu máli eins og við höfum ávallt haft í öllum öðrum málum.”
Í tilefni af þessari merkilegu uppgötvun verður haldin veisla hjá Vantrúarklúbbnum í kvöld þar sem meðlimum og gestum gefst m.a. færi á að lita kirkjuklippimyndir og breyta þeim í ríkiskirkjuklippimyndir. Einnig verður boðið upp á hið vinsæla krossakast.
“Við reiknum með að fá nóbellinn vegna þessarar uppgötvunar og því fögnum við í kvöld”, sagði formaðurinn, “allir velkomnir nema trúuðu fávitarnir”.
Þeir sem vilja kynna sér nánar alla þá gríðarlegu rannsóknarvinnu sem meðlimir Vantrúarklúbbsins lögðu á sig til að uppgötva að þjóðkirkjan er ríkiskirkja geta skoðað málið betur á vef klúbbsins.

Athugasemdir