Takið eftir – Takið eftir … var að fá til landsins heila hjörð
af strútum sem vantar ný heimili. Þetta eru allt saman afar
veluppaldir og stilltir strútar sem hafa því miður þurft að
yfirgefa ættjörð sína af ýmsum skrítnum ástæðum.
Mig langar að biðja þá sem sjá sér fært að taka að
sér a.m.k. einn strút að gefa sig fram hið fyrsta.
====================

Þessi strútur heitir Hlöðver Ingi. Hann veit ekki
hvað hann vill verða þegar hann er orðinn stór.

Þetta er hún Rebekka. Hún er í eldri kantinum
en er samt enn alveg ægilega dugleg að moka.

Þetta er Sigurlaug. Hún er stolt af því að vera strútur
og lætur engann, ég meina ENGANN, vaða yfir sig.
Og þetta er svo Strútgeir What Is An Ach Account sjálfur, aðalstrúturinn.
Honum finnst fátt skemmtilegra en að elta kindur
og veit ekki að hann er ekki strútur í alvörunni.
==========================
Ef þú getur bent á ný heimili fyrir þessa strúta
skaltu hafa samband við Strútadeild Grefilsins.

Athugasemdir