„Gengur bara ekki lengur“
segir Göltur Svínþórsson, forsvín Svínasamtakana.
„Hvernig myndi ykkur líða ef þið þyrftuð um hver einustu jól að horfa upp á félaga ykkar og ættingja hverfa ofan í potta og inn í ofna, niðurbrytjaða?“ spurði Göltur Svínþórsson á blaðamannafundi sem Svínasamtökin (SS) stóðu fyrir í morgun í félagsheimilinu Svínadal.
„Þetta brjálæði verður að stöðva. Hvar eru eiginlega okkar réttindi?“
Hafið þið reynt að tala við svínabændur um málið?
„Já, margoft, en þeirra eina svar er að slíta af okkur eistun“, sagði Göltur og er talsvert mikið fyrir. “Og gylturnar eru bara hafðar til undaneldis. Þetta er ekkert annað en nútíma svínahald.“
Hvert verður næsta skref ykkar í málinu?
„Við ætlum að láta duglega í okkur hrína á vettvangi Sameinuðu svínanna og knýja þar fram samstöðu um að samin verði svínsréttindasáttmáli sem taki gildi strax. Því miður er það orðið of seint fyrir þau okkar sem eru þegar orðin að hamborgarhryggjum en það koma jól eftir þessi jól.“
Talandi um hamborgarhryggi, hvers vegna geta ekki allir hamborgarhryggir orðið Nóatúns-hamborgarhryggir?
„Það er vegna þess að það eru ekki allir hamborgarhryggir seldir í Nóatúni. Er ekki augljóst að Hagkaups-hamborgarhryggir geta ekki líka verið Nóatúns-hamborgarhryggir?“
En af hverju er eplasalat svona gott með svínakjöti?
„Hvers konar spurningar eru þetta, þú ert kominn langt út fyrir efnið hér.“
En hvað þá með til dæmis kalkúna, rjúpur, lömb og veislukjúklinga … eru þessi dýr ekki í sömu sporum og svín?
„Mig bara varðar ekkert um veislukjúklinga. Við erum að tala um svín hér.“
Að sögn Galtar munu hann og Svíngeir Þórðarson, gjaldkeri Svínasamtakanna, standa fyrir góðgerðartónleikum á Austurvelli til styrktar málefninu á aðfangadagskvöld. Kynnir verður Gylta Brekkan, formaður grísavinafélagsins.


Djöfuls röfl er þetta í Gelti. Ég meina Göltur með hans útlit á ekkert betra skilið en að vera brytjaður niður.
Þetta eru ekkert nema svínafordómar. Svona kemur maður ekki fram við neitt svín.
Sammála, algert svinarí.