Úr dagbók Lögreglunnar

Nokkur erill var hjá Lögreglunni aðfararnótt laugardags enda eru margir Íslendingar enn að fagna því að lagið Coming Home komst í úrslit Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva þar sem það hreppti tuttugasta sætið.

Ekkert alvarlegt mun þó hafa komið upp fyrir utan hraðakstur bifreiðar sem Lögreglan í Hafnarfirði mældi á 190 km hraða undir morgun á Reykjanesveginum.

Í ljós kom að ökumaðurinn var enginn annar en Össur Skarphéðinsson að flýta sér í Evrópusambandið. Hann var látinn blása og þegar í ljós kom að hann var í sigurvímu var ákveðið að taka blóðsýni og senda það til Alþingis til greiningar.

Eftir sýnatökuna var Össuri sleppt og er ekki vitað betur en hann hann hafi fljótlega verið kominn aftur á 190 km hraða, enn að flýta sér í Evrópusambandið, en nú eftir Suðurlandsvegi. Ekki var annað að sjá að í þetta sinn væri Jóhanna með í baksætinu.

Þar sem Lögreglan hefur enga heimild til að taka manninn úr umferð upp á eigin spýtur vill hún koma þeim tilmælum til almennings að hann kveði upp dóm yfir hraðakstri Össurar í næstu kosningum.

Vonandi verður það ekki of seint.

Því miður náðist ekki í Össur við vinnslu fréttarinnar enda enda er hann alltaf farinn um leið og maður nær honum.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku