Þráinn snýr við blaðinu
Ætlar að opna fábjánafræðslu
“Reyni að láta gott af mér leiða”, segir Þráinn
Þráinn Bertelsson, þingmaður og rithöfundur, hefur sagt skilið við þingheim og sett á stofn fábjánafræðslu sem ber heitið Fábjánafræðsla Þráins ehf.
Þráinn segir að hann hafi lengi gengið með þessa hugmynd í maganum og það hafi ýtt undir áhugann þegar hann uppgötvaði að hann væri í raun að borga með sér í starfi sínu sem þingmaður.
Að sögn Þráins verður kennt eftir sérstöku fábjánafræðslukerfi sem hann hefur hannað sjálfur og var gefið út í bókinni Fábjánafræðarinn. Kennslan hefur þegar verið samþykkt af Menntamálaráðuneytinu og veitir hvert námskeið í Fábjánafræðslu Þráins ehf. nemendum rétt til að byrja aftur í grunnskóla.
Þráinn leitar nú að kennurum og hefur nafn Jónasar Kristjánssonar verið nefnt en annars er allt opið í þeim efnum. Hvetur Þráinn alla til að sækja um stöðu hjá sér, en eina hæfnisskilyrðið er að umsækjendur séu ekki fábjánar sjálfir.
Fábjána landsins hvetur hann hins vegar til að sækja sem fyrst um skólavist.


Athugasemdir