Stal tveimur kindalærum

Lærin enn föst á kindinni.

Maður á miðjum aldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands til tveggja mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að stela tveimur kindalærum úr fjárhúsi bóndans á Skálastöðum í Eyjafjarðarsveit.

Þjófnaðurinn þótti ansi bíræfinn enda voru lærin enn föst á kindinni þegar maðurinn stal þeim.

Það voru árvökulir lögreglumenn Lögreglunnar á Akureyri sem komust á sporið þegar þeir voru að sinna venjubundnu eftirliti inni í dal. Náðist maðurinn á hlaupum með lærin en játaði síðan brot sitt umyrðalaust eftir handtöku.

Til viðbótar fangelsisvistinni var maðurinn, sem hefur margoft áður komið við sögu lögreglunnar, dæmdur til greiðslu alls sakakostnaðar.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku