Látinn er í Reykjavíkurhöfn vinur minn, félagi og frændi, Ufsi Blöndal.
Ufsi, sem var aðeins sjö ára gamall er hann lést, var ætíð hraustlegur í útliti og öruggur í fasi en um leið bæði blíður, fríður, réttsýnn og glaðlyndur. Ufsi var alla tíð fiskur alls fagnaðar, hvert sem hann synti.
Ég minnist bjartra sumarkvölda þegar við Ufsi vorum tíðum við leik og störf úti fyrir Skarfakletti, en það var uppáhaldsstaður Ufsa og um leið æskuslóðirnar sem hann unni svo heitt.
Þar undi hann sér ætíð glaður í kvörnum og gerði engri marfló mein. Þegar hlé varð á dagsins önn var Ufsi alltaf í essinu sínu enda kunni hann ótal sögur af ferðum sínum um saltan sjó og var óspar á að deila þeim með okkur samferðafiskum sínum. Þá gátum við hlegið hátt. Þannig mun ég ætíð geyma minningu Ufsa í mínu hjarta.
Stórt og óbætanlegt skarð hefur verið höggvið í fjölskyldu- og vinahóp Ufsa sem nú syrgir mætan fisk.
Um leið og við sem eftir syndum kveðjum nú í hinsta sinn sannkallaðan öðling sem enginn átti von á að yrði veiddur svona snemma sendum við Ýsa okkar innilegustu samúðarkveðjur til eiginhrygnu Ufsa, Lúðu Blöndal og seiða þeirra þriggja, Karfa, Makríls og Loðnu litlu.
Blessuð sé minning Ufsa Blöndal.
- Þorskur Blöndal.

Athugasemdir