Um Grefilinn
Grefillinn punktur komm er nýjasta útrásarfyrirtæki Íslendinga.
Þótt ungt sé í mánuðum talið, þá er Grefillinn punktur komm þegar búið að hasla sér völl í meira en 42 löndum um allan heim og bætist nýtt land við fyrir hádegi á hverjum einasta degi.
Hjá Grefillinn punktur komm vinna nú hátt í þrjátíu þúsund manns af ýmsum kynjum sem eiga það sameiginlegt að vera langfallegasta og bráðvelgefnasta fólk í heimi.
Forstjóri Grefilsins punktur komm, og um leið Grefillinn sjálfur, er hins vegar ljúf- og gáfumennið Bergur Ísleifsson, sem sumir kalla reyndar Guðberg Ísleifsson enda er það hans rétta nafn. Ber hann fulla og óskoraða ábyrgð á efnistökum og öllu því efni sem á Grefilinum punktur komm birtist.
Bergur þessi er sérlega vel af Guði gerður, hávaxinn, sterklega byggður, limafagur með afbrigðum og mjúklyndur í hvívetna. Hann býr nú um stundir í borginni Guilin í Kína, þangað sem hann flutti í ársbyrjun 2012 af tómri ævintýraþrá.
Þeim sem vilja ná djúpu og persónulegu sambandi við Berg, án þess þó að koma of nálægt honum, er bent á fésbókarsíðu hans þar sem ýmsar upplýsingar er að finna um daglega háttsemi hans, drauma og fyrirætlanir. Einnig má senda honum póst á grefillinn(hjá)gmail.com.
Með þökk fyrir lesturinn,
- María Constantina, fjölmiðlafulltrúi Grefilsins.
——–


Athugasemdir