Beið ekki boðanna:

Festi ráð sitt strax eftir krýninguna

Langar ekki lengur til að vera ein.

Það tók Ungfrú Ísland 2011, Sigrúnu Evu Ármannsdóttur, ekki langan tíma að ganga út eftir að ljóst varð að hún hafði verið kosin fegursta stúlka Íslands þetta árið. Sá lukkulegi er enginn annar en Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.

Samskot þeirra Sigrúnar Evu og Kjartans hefur að vonum vakið talsverða athygli enda hefur engin stúlka áður gengið svona fljótt út eftir krýninguna sem átti sér stað á föstudagskvöld.

“Ég er heppnasta og hamingjusamasta kona í heimi núna”, sagði Sigrún Eva við blaðamann Grefilsins þegar hann hringdi í hana í morgunsárið. “Ég trúi því varla enn að ég hafi náð í Kjartan. Hann var draumaprinsinn minn og nú er hann orðinn minn í alvörunni. Er hægt að óska sér einhvers meira?”

Þau Sigrún Eva og Kjartan hyggjast ganga í formlegt hjónaband eftir helgi, eða um leið og búið er að standsetja nýja húsið þeirra á Rauðasandi.

“Ég get ekki beðið eftir að flytja inn með Kjartani”, segir Sigrún Eva. “Ég er orðin hundleið á að vera ein”.

En er Kjartan ekki kvæntur maður?

“Er það? Hann sagðist vera stakur. Annars skiptir það engu máli því ég elska hann svo mikið” sagði Sigrún Eva að lokum.

Ekki náðist í Kjartann Gunnarsson við vinnslu þessarar fréttar þar sem hann var upptekinn við að koma fyrir hraðbanka í nýja húsinu á Rauðasandi.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku