„Við erum stórkostlegt félag“

segir Matthías Ásgeirsson, eigandi Vantrúar.

Merki Vantrúar: "Jesús á krossinum er bara djók" segir Matthías :evil:

Félagasamtökin Vantrú sem á liðnum árum hafa staðið fyrir afkristnun íslensku þjóðarinnar hafa eins og kunnugt er þurft að sæta gríðarlegum ofsóknum og einelti af hálfu 99% landsmanna að undanförnu út af því einu að hafa reynt að fá Bjarna Randver kennara við Háskóla Íslands rekinn úr starfi.

“Það hlýtur að vera fokið í flest skjól þegar maður getur ekki einu sinni losnað við svona andskotans asna eins og Bjarna Randver með því að kæra hann til siðanefndar Háskólans”, segir Matthías Ásgeirsson, eigandi Vantrúar.

“Það liggur í augum uppi að það er ekkert réttlæti fólgið í því að menn komist upp með að segja sannleikann um okkur. Við erum stórkostlegt félag og ef menn geta ekki viðurkennt það hljótum við að hafa fullan rétt á að ráðast á þá persónulega.”

Við nánari skoðun Grefilsins á atriðum kærunnar sem Matthías vísar í er ljóst að Bjarni Randver gerði sig sekan um að birta ummæli Matthíasar og félaga hans hjá Vantrú orðrétt.

“Við settum broskall fyrir aftan þessi ummæli og því geta allir séð að þetta var bara hálfkæringur. Við vorum bara að grínast af því að okkur fannst það fyndið að brátt yrði Bjarni rekinn. Hvað er eiginlega að þessum fávitum ef þeir skilja ekki hvað broskall þýðir? Þeirri spurningu þarf að svara.”

“Þetta er ekkert annað en samsæri á vegum þjóðkirkjunnar,” segir gáfumennið Jón Steinar Ragnarsson, einn nánasti aðstoðarmaður Matthíasar og skoðanabróðir. 

Í sama streng taka allir meðlimir Vantrúar, bæði þeir heilabiluðu svo og þeir sem glíma við aðrar skyntruflanir. Ofsóknir manna þeim á hendur eru óverðskuldaðar með öllu því þeir hafa ekkert gert nema leggja trúuðu fávitana í einelti, eins og réttur þeirra er.

“Þetta byggist allt saman á lesmiskilningi,” segir Valgarður Guðjónsson, sem viðurkennir að hann sé gildur meðlimur í Vantrú. “Menn virðast halda að þótt þeir geti vitnað orðrétt í ummæli okkar þá þýði þau að það sem við segjum sé í raun það sem við meinum.”

Málið allt hefur tekið á sig hinn undarlegasta svip að undanförnu. Við hér á Greflinum munum að sjálfsögðu fylgjast vel með framvindu mála og láta lesendur okkar vita um leið og eitthvað gruggugt kemur upp úr pottunum.

:-D

  6 Responses to “Vantrú gerir hreint fyrir sínum dyrum”

  1. Mér finnst alltaf gaman að sjá hatrið og hefndarþorstann sem kristnir einstaklingar sýna hver öðrum á jólunum. Kannski vegna þess hvað ég fékk slæmt uppeldi. Alveg óþarfi samt að núa manni því um nasir. Ég get ekkert að þessu gert, maður verður bara svona á því að vera í Vantrú. :-)

  2. Sæll, Grefill og takk fyrir að birta viðtalið við mig. Það hafa ekki allir miðlar vilja gera það eins heiðarlega og þú. Ég vil samt fá að taka það fram að hann Björn I sem skrifar hér fyrir ofan er EKKI meðlimur í Vantrú. Hann gat ekki borgað sóknargjaldið. Bara þeir sem borga eru í Vantrú. :-)

  3. Hvar getur maður skráð sig í þennan söfnuð? Eruð þið með messur reglulega? Hvað heitir ykkar Guð?

  4. Sæll, Grettir … við hér á Greflinum erum nú reyndar ekki í Vantrúarsöfnuðinum heldur bara óbreyttir fréttasnápar en getum þó svarað því til að skráning fer fram alla laugardaga fyrir utan pylsuvagninn í Þorlákshöfn og að Guðinn þeirra kallast víst Matthías. Að öðru leyti verður þú að Gúggla málið fyrir frekari upplýsingar. Þakka þér fyrir innlitið.

  5. Vá, ég hélt fyrst þegar ég las þetta að Matti hefði í alvöru veitt viðtal hér. en svo sá ég broskallinn. Allt í góðu, ha, ha, ha.
    :-)

  6. Já, ég sé það núna. Það eru broskallar við allt. Góður Grefill, nú sjá auðvitað allir að þetta er bara djók. Verð að segja samt að þú ert með sérstaklega skemmtilegan húmor :-)

    ps. Blessaður taktu ekkert mark á fýluviðbrögðunum mínum á spjallinu hjá Vantrú. Maður verður að sýnast dáldið stór þarna til að hafa kontról á hýenunum, ef þú skilur hvað ég á við, wink, wink.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku