Það gripu margir í tómt sem lásu fréttir gærdagsins hér á Greflinum og áttuðu sig ekki á því að um aprílgöbb var að ræða.

Í fyrra gabbinu sögðum við að verið væri að bjóða upp á ókeypis kótilettur á Múlakaffi.

Þetta var auðvitað haugalygi en samt gekk fjöldi manns í gildruna og um tíma var ásóknin í kótiletturnar á Múlakaffi orðin svo mikil að röðin náði niður í Lágmúla.

Hitt gabbið heppnaðist líka sérlega vel. Þar sögðum við frá skilnaði Jónínu Ben og Gunnars í Krossinum, ástarsambandi Jónínu og Svans Sigurbjörnssonar og að þau Jónína og Svanur yrðu síðar um daginn hjá Guðfinni bílasala.

Það var við manninn mælt að fjölmargir mættu á planið hjá Guðfinni bílasala til að hylla þau Jónínu og Svan. Var skarinn orðinn svo mikill að Guðfinnur sagðist aldrei hafa séð annað eins.

Við viljum nota tækifærið og þakka þeim sem hlupu apríl svo og öðrum sem tóku þátt. Við gerum þetta kannski aftur að ári!

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku