Við hér á Greflinum höfum ákveðið að halda áfram að veita viðskiptavinum okkar og velunnurum þá frábæru þjónustu að birta lottótölurnar fyrirfram til að tryggja að allir sem vilja geti fengið þann stóra.
Þetta gerum við þrátt fyrir vægast sagt vanþakkláta þátttöku síðasta laugardag, en aðeins einn ákvað að nota þjónustu okkar og hreppti því stóra vinninginn óskiptan.
Við vonum að þátttakan verði betri að þessu sinni þegar dregið verður í Víkingalottóinu í kvöld, enda er fyrsti vinningur veglegur að vanda.
En hér koma …
Víkingalottótölur kvöldsins
24. maí 2011
1 - 5 - 9 - 21 - 31 – 32
Munið svo að mæta snemma á sölustaði til að forðast biðraðir.

Athugasemdir