Ný þjónusta á Greflinum

Við hér á Greflinum höfum í samstarfi við Steinar og Stulla ákveðið að láta ástkæra lesendur okkar fá íslensku Lottótölurnar fyrirfram svo öruggt sé að þeir sem kaupa miða fái þann stóra.

Þjónusta þessi er til komin í kjölfar rannsóknar sem gerð var í Háskólanum fyrr á árinu en hún leiddi í ljós að ástæðan fyrir því að svo fáir fá stóra vinninginn hverju sinni er að þeir eru með rangar tölur á miðunum sínum.

Skilyrði fyrir þátttöku eru engin, en auðvitað verða þeir sem ætla að hagnast á þjónustunni að kaupa a.m.k. eina röð með réttu tölunum.

En, það er ekki eftir neinu að bíða – hér koma Lottótölur kvöldsins:

212 - 16 - 25 og 38.

Bónustalan verður 8

Jókertölurnar verða:
5-3-2-0-9

Svo viljum við auðvitað hvetja alla sem vilja fá stóra vinninginn í kvöld að mæta snemma á sölustaði til að forðast biðraðir. Það er alveg ferlegt að missa af vinningnum, bara af því maður kom of seint.

Vinsamlega munið svo eftir að senda Grefilinum 20% af vinningnum.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku